Fyrrum liðsfélagi Elíasar valinn bestur - Neitaði að snúa aftur til Danmerkur

Mynd: EPA

Ashour vildi alls ekki snúa aftur til Danmerkur

Mynd: Midtjylland

Mynd: EPA
Emam Ashour, sem skoraði mark Egypta í 1-1 jafnteflinu gegn Belgíu, var valinn besti maður leiksins af FIFA, en Toby Writes, notandi á X segir skemmtilega sögu af því þegar hann gekk í raðir Midtjylland í Danmörku.

TENGT EFNI
HM: Sanngjörn niðurstaða í Seattle
Ashour skoraði frábært mark fyrir Egypta, á sínu fyrsta á heimsmeistaramóti.
Þar með varð hann aðeins fimmti leikmaðurinn til að skora fyrir Egyptaland á HM.
Árið 2023 fékk Midtjylland Ashour frá Zamalek í heimalandinu, en þjálfarinn sem samþykkti kaupin var rekinn skömmu síðar, eftir að Ashour meiddist.
Ashour bað þá um að fá að fara heim til Egyptalands í endurhæfingu og Midtjylland samþykkti það. Þegar hann átti að snúa aftur til félagsins fyrir undirbúningstímabilið neitaði hann hins vegar að fara aftur til Evrópu.
Midtjylland neyddist því til að selja hann til Al Ahly, þar sem hann spilar enn í dag.
Margir Egyptar eru mjög heimakærir og fáir landsliðsmenn spila utan heimalandsins, enda er deildin þar sterk. Aðeins níu af 26 leikmönnum landsliðsins spila utan Egyptalands.
Ashour lék aðeins sjö leiki með Midtjylland og skoraði tvö mörk á tíma sínum hjá félaginu. Hann var þar meðal annars liðsfélagi Elíasar Rafns Ólafssonar, sem er aðalmarkvörður íslenska A-landsliðsins.

Emam Ashour earns the Superior Player of the Match trophy. ????#FIFAWorldCup #SuperiorPOTM pic.twitter.com/mE913EFno9
— FIFA World Cup (@FIFAWorldCup) June 15, 2026
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!