Fotbolti.net
15.06.26 - 21:03
Brynjar Ingi Erluson

HM: Sanngjörn niðurstaða í Seattle

Emam Ashour fagnar marki Egypta

Emam Ashour fagnar marki Egypta

Canon

Mynd: EPA

Belgía 1 - 1 Egyptaland
0-1 Emam Ashour ('19 )
1-1 Mohamed Hany ('66 , sjálfsmark)
Belgía og Egyptaland skildu jöfn í fyrsta leik þjóðanna, 1-1, í G-riðli heimsmeistaramótsins í Seattle í Washington-ríki í Bandaríkjunum í kvöld.

Á pappír var Belgía með mun sterkari hóp en þó voru tvö stór nöfn í liði Egyptalands, með þá Mohamed Salah og Omar Marmoush, en það var fremur óþekkt nafn sem kom þeim yfir á 19. mínútu leiksins.

Salah var með boltann á hægri vængnum, kom honum á Emam Ashour sem tók á móti honum rétt fyrir utan teiginn áður en hann hamraði boltanum í vinstra hornið.

Egyptar fögnuðu af innlifun og sérstaklega Ashour sem fagnaði að hætti írska bardagakappans Conor McGregor og um leið aðeins fjórði Egyptinn til að skora á heimsmeistaramóti.

Belgar voru slakir í fyrri hálfleiknum á meðan Egyptar gátu skorað annað mark en Thibaut Courtois varði frá Marmoush.

Í þeim síðari voru Belgarnir mun líflegri. Kevin de Bruyne átti aukaspyrnu rétt fyrir utan teig sem hafnaði í stönginni og þá átti Youri Tielamans hörkuskot á loft sem fór rétt framhjá. Hefði verið mark mótsins hefði boltinn endað inni.

Á hinum endanum átti Salah skalla sem Courtois varði klaufalega út á Ashour en hann þrumaði frákastinu framhjá úr úrvalsfæri.

Marmoush gat tvöfaldað forystuna er hann slapp inn fyrir og hljóp frá miðju og alveg upp að marki, en Nathan Ngoy, miðvörður Belga, var fljótur að koma sér til baka og náði að ýta aðeins í Marmoush er hann var í miðju skoti sem flaug yfir markið.

De Bruyne komst í dauðafæri nokkrum mínútum síðar en setti boltann beint á Shobeir í markinu og í kjölfarið kom Romelu Lukaku inn á hjá Belgum.

Það tók hann aðeins nokkrar sekúndur að hafa áhrif. Thomas Meunier fékk boltann hægra megin, kom með fyrirgjöfina inn á Lukaku sem var með tvo menn í sér. Þeir voru í fullu fangi með hann og fór svo að boltinn skoppaði af Mohamed Hany og í eigið net.

Sex mínútum fyrir leikslok fengu Belgar færi til þess að taka öll stigin. Aukaspyrna kom inn á teiginn á Brandon Mechele sem skallaði boltanum á fjær, en Shobeir varði stórkostlega.

Belgarnir voru líklegri á síðustu mínútunum en sigurmarkið kom aldrei og lokatölur 1-1. Líklega sanngjörn úrslit þegar upp er staðið.

Belgía: Courtois (M), Meunier, Ngoy, Mechele, Castagne (Raskin '56), Onana (De Cuyper '56), Tielemans, Trossard, De Bruyne (Vanaken '86), Doku (Pardo-Fernandez '86), De Ketelaere (Lukaku '66).

Egyptaland: Shobeir (M), Hany, Ibrahim, Fathy (Adel '89), Fatouh (Hafez '89), Attia, Lasheen, Ziko (Zizo '76), Salah (Abdelkarim '76), Ashour (Rabia '71), Marmoush.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Romelu Lukaku hafði strax áhrif á leikinn

Romelu Lukaku hafði strax áhrif á leikinn

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.