Fotbolti.net
16.06.26 - 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Stórhissa á fréttunum um Freysa og Rosenborg

Freyr Alexandersson.

Freyr Alexandersson.

Canon

Mynd: EPA

Norskir fjölmiðlar hafa fjallað um það í dag að Rosenborg hafi rætt við Frey Alexandersson um að taka við liðinu.

Freyr var í upphafi mánaðarins látinn fara frá Brann eftir að hafa gert þar flotta hluti.
Alfreð að ráða Freysa?
TENGT EFNI

Alfreð að ráða Freysa?

Yaw Amankwah, sérfræðingur TV2 Sport í Noregi, segir það koma á óvart að Freyr sé mögulega að taka við Rosenborg.

„Ég er mjög hissa. Þjálfari sem var nýverið rekinn frá Brann er mögulega að fara beint á Lerkendal. Þetta er svolítið ótrúlegt," sagði Amankwah um fréttirnar.

„Freyr gerði mjög mikið af góðum hlutum með Brann. Það mun sitja djúpt í sumum Rosenborg stuðningsmönnum að þjálfari sem var ekki talinn nógu góður í Bergen sé nú maðurinn sem á að leysa stór vandamál í Þrándheimi."

Alfreð Finnbogason er yfirmaður fótboltamála hjá Rosenborg en hann og Freyr þekkjast vel.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.