16.07.05 - 07:30
Magnús Már Einarsson
Maresca til Sevilla (Staðfest)

Maresca fagnar marki.


Maresca fagnar marki.

Sevilla hefur keypt miðjumanninn Enzo Maresca frá Juventus á þrjár milljónir evra. Maresca sem er 25 ára lék á sínum tíma með Fiorentina en hann var orðaður við enska liðið Fulham á dögunum.
Maresca sem hefur skrifað undir þriggja ára samning við Sevilla er sá þriðji sem liðið fær í sumar en áður höfðu Andres Palop markvörður Valencia og Luis Fabinao sóknarmaður Porto komið.
Ramon Rodriguez yfirmaður íþróttamála hjá Sevilla var ánægður með að liðið náði í Maresca og hann sagði. ,,Hann er frábær leikmaður sem getur gert frábæra hluti fyrir Sevilla."
Ramon Rodriguez yfirmaður íþróttamála hjá Sevilla var ánægður með að liðið náði í Maresca og hann sagði. ,,Hann er frábær leikmaður sem getur gert frábæra hluti fyrir Sevilla."
