Fotbolti.net
16.07.17 - 06:00
Arnar Daði Arnarsson

GunnInga býst við þrjúþúsund Íslendingum á fyrsta leik

Auglýsing
GunnInga í stúkunni.

GunnInga í stúkunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Guðrún Inga Sívertsen, varaformaður KSÍ, segist reikna með því að í kringum 3.000 Íslendingar verði á fyrsta leik Íslands á þriðjudaginn þegar leikið verður gegn Frakklandi á EM í Hollandi.
„Það er frábært tala. Það er flottur stuðningur og það er ekki hægt að segja annað en að það verði skemmtilegt á pöllunum,\" segir GunnInga.

„Fólkið hérna er spennt að sjá íslensku stuðningsmennina. Við stimpluðum okkur vel inn í þetta evrópska fótboltaumhverfi í fyrra svo vel var tekið eftir.\"

Hún hvetur Íslendinga heima á Íslandi að mæta á EM-torgið á Ingólfstorgi og búa til stemningu.

„Það skilar sér hingað. Ef það er góður stuðningur verða teknar myndir og annað. Stelpurnar eru mjög þakklátar fyrir þann stuðning sem þær eru að fá.\"

Sjáðu viðtalið í heild sinni í sjónvaprin
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.