Fotbolti.net
16.07.20 - 18:02
Ívan Guðjón Baldursson

Championship: Leeds með níu tær í úrvalsdeildinni

Barnsley svo gott sem fallið

Championship: Leeds með níu tær í úrvalsdeildinni
Canon

Mynd: Getty Images

Leeds 1 - 0 Barnsley
1-0 Michael Sollbauer ('28, sjálfsmark)
Leeds United er svo gott sem komið upp í ensku úrvalsdeildina eftir 1-0 sigur gegn Barnsley í dag. Lærisveinar Marcelo Bielsa þurfa aðeins eitt stig úr síðustu tveimur leikjum tímabilsins til að tryggja sæti sitt í deild þeirra bestu.

Eina mark leiksins kom í fyrri hálfleik, þegar Michael Sollbauer setti boltann í eigið net eftir lága fyrirgjöf Patrick Bamford.

Leikurinn var nokkuð jafn framan af en gestirnir áttu góðan síðari hálfleik án þess þó að koma knettinum í netið.

Barnsley vermir botnsæti deildarinnar og er fjórum stigum frá öruggu sæti eftir tapið. Aðeins tvær umferðir eru eftir af deildartímabilinu.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough17+1435
2Stoke City17+835
3Wolves17+1234
4Birmingham17+1532
5West Brom17+1032
6Southampton17+1628
7QPR17+728
8Swansea17+327
9Sheffield Utd17+626
10Portsmouth17+326
11Norwich17+925
12Blackburn17025
13West Ham17+1324
14Wrexham17-122
15Charlton Athletic17-720
16Bristol City17-1019
17Cardiff City17-518
18Millwall17-618
19Bolton17-1118
20Watford17-1515
21Lincoln City17-1615
22Preston NE17-1312
23Burnley17-1111
24Derby County17-2110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.