Fotbolti.net
16.08.17 - 22:40
Lilja Dögg Valþórsdóttir

Tinna: Aldrei séð jafn hreina tæklingu

Auglýsing
Tinna Bjarndís var ósátt við fyrri hálfleik liðsins í kvöld

Tinna Bjarndís var ósátt við fyrri hálfleik liðsins í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Hertz
<i>“Ég held að það hafi verið fyrri hálfleikurinn sem drap þetta svolítið fyrir okkur. Byrjuðum alls ekki nógu vel og vissum alveg þegar við komum í hálfleik að við þurftum að snúa þessu algjörlega við. Þora að hafa boltann og spila honum, þá var þetta allt annað í seinni hálfleik. Þannig að ef við hefðum átt tvo þannig hálfleika þá held ég að þetta hefði verið allt annað,”</i> sagði Tinna Bjarndís Bergþórsdóttir, fyrirliði Fylkis, eftir tveggja marka tap gegn Breiðablik í kvöld.
Dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu á Fylki á 34. mínútu leiksins eftir tæklingu Brooke Hendrix á Berglindi. Tinna var ekki sammála dómaranum í þessu tilfelli.

“Ég hef bara aldrei séð jafn hreina tæklingu. Ég var alveg í sjokki að þetta hafi verið víti. Ég veit ekki hvort að hann var bara algjörlega á vitlausum stað til að sjá þetta ekki en ég sagði allavega við hann að hann þyrfti að horfa á þetta í kvöld og vonandi að þeir læri bara af þessu.”

Útlitið er ekki bjart hjá Fylki þar sem þær eru nú í næstneðsta sæti deildarinnar, 7 stigum frá KR sem situr í sætinu fyrir ofan og aðeins 5 umferðir eftir. Við spurðum Tinnu útí framhaldið og viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér efst á síðunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.