Keflavík semur við markahæsta mann Lengjudeildarinnar

Joey Gibbs.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Joey Gibbs.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ástralski sóknarmaðurinn Joey Gibbs hefur framlengt samning sinn við Keflavík til 2022.
Gibbs gekk í raðir Keflavíkur í febrúar á þessu ári og hefur hann verið virkilega öflugur fyrir félagið í Lengjudeildinni. Hann er markahæsti leikmaður deildarinnar með 11 mörk í níu leikjum, og er stór ástæða þess að Keflavík trónir á toppi deildarinnar.

Tilkynning Keflavíkur:
Ástralska markamaskínan okkar, Joey Gibbs hefur framlengt samning sinn við Keflavík út tímabilið 2022.
Joey er búinn að vera frábær á þessu tímabili hjá Keflavík og er markahæstur í Lengjudeildinni með 11 mörk.
Joey er ekki bara frábær fótboltamaður heldur hefur hann smell passað í hópinn okkar og kann vel við sig á Íslandi. Þetta eru gríðarlega góðar fréttir og það verður gaman að fagna mörkunum hans næstu ár.