HK tóku á móti KR í Kórnum þegar 17.umferð Pepsi Max deildar karla hélt áfram göngu sinni í kvöld. Leikurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið en HK er í harðri baráttu um að halda sæti sínu í deildinni.
Eftir erfiða byrjun þar sem KR lenti manni færri voru það þó KR sem skoruðu eina mark leiksins og fóru með sigur af hólmi.
Eftir erfiða byrjun þar sem KR lenti manni færri voru það þó KR sem skoruðu eina mark leiksins og fóru með sigur af hólmi.
Lestu um leikinn: HK 0 - 1 KR
„Svekktur með tap, óverðskuldað tap klárlega. Hefðum getað snúið leiknum okkur í hag með því að skora úr víti á góðum tíma rétt fyrir hálfleik en gerðum það ekki en síðan breytist leikurinn í seinni hálfleik að þeir liggja meira tilbaka og eru bara mjög þéttir og þetta eru það reynslumiklir menn í KR liðinu og gerðu það bara vel." Sagði Brynjar Björn Gunnarsson þjálfari HK eftir leik.
HK brenndi af enn einni vítaspyrnunni í sumar þegar Birnir Snær Ingason skaut hátt yfir markið en vítaklúðrin gætu reynst HK dýr þegar uppi er staðið.
„Já mögulega en það þýðir ekkert að hugsa um það. Það er búið í dag og það er bara næsti leikur."
HK heimsækir Leikni í næstu umferð en nú fara hver stig að vega meira.
„Já þau gera það en eins og staðan er þá er þetta ennþá í okkar höndum sem er ánægjulegt til að koma okkur í betri stöðu en það er rétt, taflan lýgur ekki og við þurfum fleirri stig."
Viðtalið í heild sinni er í spilaranum hér fyrir ofan
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
Athugasemdir






















