Rikki Daða: Góðir og kannski smá heppnir líka
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ríkharður Daðason og lærisveinar í Fram geta andað léttar eftir að hafa unnið Breiðablik í kvöld. Mikið þarf að ganga á til að Fram falli úr þessu.
„Við erum búnir að vera að ströggla og með menn fjarverandi. Það er mikill karakter hjá okkur að þeir sem eftir standa gefa allt í þetta. Við spilum fínan fyrri hálfleik og gerum virkilega vel að komast í 2-0,\" sagði Ríkharður eftir leikinn.
Eftir að Breiðablik minnkaði muninn fékk liðið fjölda góðra færa til að jafna.
„Sem betur fer í þetta sinn vorum við góðir og kannski smá heppnir líka.\"
Framarar náðu að svo gott sem kæfa falldrauginn með þessum úrslitum. „Stigin í seinni umferð hafa verið of fá. Við höfum verið að gefa frá okkur stigin. Þetta var virkilega kærkomið og það þarf mikið að gerast til að við drögumst inn í baráttuna í lokaumferðunum.\"
„Einhverra hluta vegna erum við betri þegar við mætum liðum í efri hlutanum. Þá virðumst við gera færri mistök.\"
Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.