Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 16. október 2020 22:14
Brynjar Ingi Erluson
Frakkland: Mbappe skoraði tvö í öruggum sigri PSG
Kylian Mbappe gerði tvö mörk gegn Nimes
Kylian Mbappe gerði tvö mörk gegn Nimes
Mynd: Getty Images
Franska stórliðið Paris Saint-Germain vann Nimes 4-0 er liðin áttust við í frönsku deildinni í kvöld en Kylian Mbappe skoraði tvö mörk Parísarliðsins.

PSG tapaði fyrstu tveimur leikjum deildarinnar gegn Lens og Marseille en eftir að hafa fengið megnið af mannskapnum aftur inn komst liðið aftur á sigurbraut og hefur nú unnið síðustu fimm leiki sína.

Kylian Mbappe skoraði fyrsta markið á 32. mínútu eftir laglegan sprett en liðið gerði síðan þrjú mörk á síðustu fimmtán mínútum leiksins.

Alessandro Florenzi bætti við öðru marki á 77. mínútu áður en Mbappe gerði annað mark sitt í leiknum. Pablo Sarabia skoraði fjórða og síðasta markið en hann lagði einnig upp tvö mörk í leiknum.

4-0 sigur PSG staðreynd og liðið komið í toppsætið með 15 stig. Hægt er að sjá bæði mörk Mbappe hér fyrir neðan.

Fyrra mark Mbappe
Seinna mark Mbappe
Athugasemdir
banner
banner