16.10.26 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deildin: Tíu Eyjamenn skópu sigur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV 3 - 1 FH
1-0 Omar Sowe ('12)
2-0 Viggó Valgeirsson ('74)
2-1 Kjartan Kári Halldórsson ('80)
3-1 Arnór Ingi Kristinsson ('82)
Rautt spjald: Bjarki Björn Gunnarsson, ÍBV ('38)

TENGT EFNI
Ótrúlegar 90 sekúndur á Hásteinsvelli
Fallnir Eyjamenn tóku á móti FH í eina leik kvöldsins í neðri hluta Bestu deildarinnar og náði Omar Sowe forystunni fyrir heimamenn á tólftu mínútu. Hann skoraði eftir frábært spil ÍBV og átti Arnór Ingi Kristinsson góða stoðsendingu.
Eyjamenn fengu kjörið tækifæri til að tvöfalda forystuna þegar Omar skaut í stöng og fylgdi Heiðmar Þór Magnússon eftir með skoti í slá, en boltinn rataði ekki í netið. Skömmu síðar fékk Bjarki Björn Gunnarsson tvö gul spjöld með stuttu millibili, það fyrra fyrir að stöðva skyndisókn og seinna eftir stympingar við andstæðing sinn beint í kjölfarið.
Vestmannaeyingar létu liðsmuninn ekki á sig fá og sýndu mikla baráttu og stolt til að tvöfalda forystuna á 74. mínútu. Í þetta sinn skoraði Viggó Valgeirsson eftir góða sendingu frá Omar Sowe.
Kjartan Kári Halldórsson minnkaði muninn fyrir gestina úr Hafnarfirði með laglegu marki beint úr aukaspyrnu á 80. mínútu, en Eyjamenn endurheimtu forystuna skömmu síðar. Arnór Ingi skoraði eftir frábært spil og innsiglaði sigur ÍBV. Lokatölur 3-1 og fyrsti sigur ÍBV í 104 daga staðreynd.
FH er svo gott sem búið að bjarga sér frá falli úr Bestu deildinni þrátt fyrir þetta tap. ÍBV leikur í Lengjudeildinni á næsta ári.