Fotbolti.net
16.10.26 - 09:23
Elvar Geir Magnússon

Orri Steinn kallaði til fundar í Tallinn

Orri Steinn Óskarsson sýndi góð fyrirliðaviðbrögð.

Orri Steinn Óskarsson sýndi góð fyrirliðaviðbrögð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari segir að skömm þeirra leikmanna sem brutu agareglur sé nægileg refsing. Málinu sé lokið í sínum huga.

Ónafngreindir leikmenn landsliðsins fengu sér áfengi og fóru á pókerklúbb fyrir leik gegn Eistlandi. Arnar vill ekki gefa upp hvaða leikmenn það voru.

Arnar ræddi um málið í viðtali við Vísi og er hægt að horfa á viðtalið heild sinni hér. Þar hrósar hann meðal annars landsliðsfyrirliðanum Orra Steini Óskarssyni fyrir hans viðbrögð.
Arnar um agabrotin: Undirbúningurinn fór til fjandans
TENGT EFNI

Arnar um agabrotin: Undirbúningurinn fór til fjandans

„Meira en iðrun. Þeir voru mjög leiðir yfir þessu. Ég er mjög stoltur af mínum fyrir­liða, Orri Steini, fyrir að hafa kallað leik­manna­hópinn saman og haldið góðan fund. Án aðkomu minnar. Það er mikilvægt að leik­menn fái að pústa. Við stigum skref í að verða al­vöru full­orðin­slið með því að tala hvorn annan til og veita aðhald. Ég var mjög sáttur við það. En á endanum er það þessara leik­manna, sem að gerðu þessa hluti, að sjá til þess að þetta gerist ekki aftur," segir Arnar í viðtalinu.

Heimild: Vísir

Orri Steinn kallaði til fundar í Tallinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.