16.10.26 - 09:06
Elvar Geir Magnússon
Ekki fyrstu agabrotin undir stjórn Arnars?

Arnar segist ekki túlka málið þannig að leikmenn hafi sýnt sér virðingarleysi sérstaklega.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari gaf óljóst svar þegar hann var spurður að því hvort agabrotin í síðasta glugga hafi verið fyrstu agavandamálin sem koma upp síðan hann varð landsliðsþjálfari.
Ónafngreindir leikmenn landsliðsins fengu sér áfengi og fóru á pókerklúbb í síðasta glugga. Arnar vill ekki gefa upp hvaða leikmenn það voru.
Arnar ræddi um málið í viðtali við Vísi og er hægt að horfa á viðtalið heild sinni hér. Aron Guðmundsson íþróttafréttamaður tók viðtalið og spurði meðal annars út í sögusagnir um að áður hafi komið upp mál af þessu tagi.
Talandi um sögur, af því að þær hafa óneitanlega farið á kreik eftir að þetta varð opinbert, þá hefur meðal annars heyrst að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem leikmenn gerist sekir um agabrot undir þinni stjórn í landsliðinu, er það rétt?
„Ekki svona agabrot. Það hefur verið meira kannski… það gerðist einu sinni fyrr í landsliðsverkefni í Skotlandi að mig minnir. En það var mjög lítillegt. Það var kannski meira svona eitthvað sem var ekki alveg kannski ljóst af minni hálfu. Þetta er í fyrsta skipti sem eitthvað gerist og maður hugsar með sér: „Ókei, hvað er í gangi hérna?“ svaraði Arnar.

TENGT EFNI
Arnar um agabrotin: Undirbúningurinn fór til fjandans
Hverjar eru agareglurnar?
Arnar segir í viðtalinu að menn hafi sýnt mikla iðrun eftir að hafa farið yfir stríkið í síðasta glugga. Málið sé að baki í sínum huga og að hann túlki það ekki þannig að leikmennirnir hafi sýnt sér virðingarleysi sérstaklega.
Einhver umræða hefur verið um að agareglur Arnars hjá landsliðinu séu ekki skýrar. Hann sjálfur hefur treyst á heilbrigða skynsemi leikmanna sinna og að þeir hegði sér sem atvinnumenn.
„Leikurinn við Búlgaríu var á laugardegi. Við erum að fara í ferðalag á sunnudegi. Það er leikur á þriðjudag. Það er rosa skrýtið í mínum huga að þurfa að segja leikmanni, þegar þú gefur honum frelsi til að fara út og hitta fjölskyldu, vini og vandamenn í löngum og ströngum glugga, að drekka ekki áfengi það kvöld. Mér finnst það bara fyrir neðan mína virðingu að vera að setja svoleiðis reglur af því ef menn skilja þetta ekki þá eiga þeir ekki að vera í þessum bransa," segir Arnar í viðtalinu við Vísi.

Heimild: Vísir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson