16.10.26 - 20:14
Ívan Guðjón Baldursson
Sigurður Arnar: ÍBV er mitt lið og verður það áfram
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Arnar Magnússon var á sínum stað í byrjunarliði ÍBV sem vann frækinn sigur á FH í Bestu deildinni í dag, þrátt fyrir að spila stærsta hluta leiksins einum manni færri.

TENGT EFNI
Sigurður Arnar orðaður við Val
Sigurður var stoltur af frammistöðunni eftir lokaflautið, en augljóslega svekktur með að vera fallinn úr deild þeirra bestu.
„Mér fannst við alltaf vera í sénsum, ég var búinn að gleyma því undir lok leiks að við vorum manni færri," sagði Sigurður.
„Þessi leikur minnir mann kannski á það að þau ÍBV lið sem yfirleitt ganga eru með kjarna af Eyjamönnum. Maður verður aðeins jákvæðari fyrir framhaldinu þegar maður sér þessa ungu stráka sem komu inn í dag og stóðu sig stórkostlega. Ef við náum að búa til kjarna af Vestmanneyingum sem taka við boltanum, af því að við höfum misst marga undanfarin ár, þá hef ég trú á að þetta lið geti náð vopnum sínum aftur. Við sjáum ÍBV vonandi í efstu deild aftur mjög snemma."
Sigurður var spurður út í framtíðina og segist ekki vera búinn að ákveða sig. Það er áhugi á honum úr Bestu deildinni en varnarjaxlinn á eftir að taka ákvörðun um hvað hann gerir næsta sumar. Þar er ýmislegt sem spilar inn í, þá sérstaklega sú staðreynd að kærasta Sigurðar býr í Bandaríkjunum.
„Ég er stoltur af því að spila fyrir ÍBV. Þetta er mitt lið og verður áfram mitt lið."