16.10.26 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Þolinmæðin með Brynjólf að skila sér

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brynjólfur Andersen Willumsson hefur farið feykilega vel af stað á nýju tímabili með FC Groningen í efstu deild hollenska boltans.
Brynjólfur er kominn með 5 mörk í 8 leikjum á upphafi nýs tímabils og því virðist þolinmæði þjálfarateymis Groningen vera að skila sér.
Brynjólfur skoraði aðeins 4 mörk í 29 deildarleikjum á sínu fyrsta tímabili með liðinu 2024-25, áður en hann byrjaði síðustu leiktíð af miklum krafti. Hann setti fimm mörk í fyrstu fjórum deildarleikjunum áður en hann meiddist lítillega og náði sér aldrei aftur á strik.
Honum tókst aðeins að skora einu sinni næstu 24 deildarleiki Groningen en áfram hafði félagið trú á honum og núna er hann í miklu stuði.
Groningen endaði í níunda sæti hollensku deildarinnar á síðustu leiktíð og situr í sjötta sæti sem stendur, með 14 stig eftir 8 umferðir.
Brynjólfur er 26 ára gamall og hefur skorað eitt mark í tólf A-landsleikjum.
Hans markamesta tímabil var hjá Kristiansund þegar hann skoraði 7 mörk og gaf 7 stoðsendingar í 20 deildarleikjum árið 2023.
Næsti leikur Groningen er á sunnudaginn, á heimavelli gegn sögufrægu stórveldi Ajax.