Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 16. nóvember 2022 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ísland í dag - Eystrasaltsbikarinn fer af stað
Mynd: EPA

Ísland hefur leik í Eystrasaltsbikarnum í dag en þetta er fjögurra liða æfingamót.


Ísland mætir Litháen og Lettland mætir Eistlandi. Leikur Litháen og Íslands fer fram á Darius & Girenas vellinum í Litháen.

Sigurvegarar leikjana beggja mætast í úrslitaleik á laugardaginn en tapliðin mætast í leik um þriðja sætið sama dag.

Um er að ræða alþjóðlegan landsleikjaglugga svo það eru reyndari menn í hópnum núna en í leikjunum gegn Sádí Arabíu og Suður Kóreu, Aron Einar Gunnarsson er sá eini sem er áfram í hópnum.

Leikir dagsins

17:00 Lettland-Eistland (Daugava Stadium)
17:00 Litháen-Ísland (Darius & Girenas Stadium)


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner