Fotbolti.net
17.01.21 - 10:30
Elvar Geir Magnússon

Neville og Carragher völdu sameiginleg byrjunarlið Liverpool og Man Utd

Gary Neville og Jamie Carragher.

Gary Neville og Jamie Carragher.

Canon

Mynd: Getty Images

Það eru allir að tala um stórleik Liverpool og Manchester United sem fram fer á Anfield í dag klukkan 16:30. Gary Neville og Jamie Carragher settu saman sameiginleg lið þessara tveggja risa í tilefni af leiknum.

Hjá þeim var horft til leikmannahópana þegar allir leikmenn eru heilir og því er Virgil van Dijk í báðum liðum.

Alisson er í marki beggja liða. Harry Maguire er í vörninni hjá Neville en Carragher er bara með leikmenn úr Liverpool í sinni öftustu línu.

Á miðjunni er Neville með Pogba en Carragher velur Thiago. Þeir eru svo sammála með sóknarlínuna.
Lið Gary Neville (4-3-3): Alisson; Alexander-Arnold, Van Dijk, Maguire, Robertson; Fernandes, Fabinho, Pogba; Salah, Rashford, Mane.

Lið Jamie Carragher (4-3-3): Alisson; Alexander-Arnold, Van Dijk, Gomez, Robertson; Fernandes, Fabinho, Thiago; Salah, Rashford, Mane.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.