17.01.22 - 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kolbeinn og Kristian áfram á sigurbraut

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kolbeinn Finnsson var í byrjunarliði varaliðs Dortmund sem heimsótti Mannheim í þriðju efstu deild í Þýskalandi í kvöld.
Mannheim komst yfir snemma leiks og var með eins marks forystu í hálfleik. Dortmund jafnaði loks metin þegar stundarfjórðungur var eftir.
Dortmund skoraði síðan tvö mörk þegar venjulegur leiktími var liðinn og sigraði leikinn 3-1. Kolbeinn lék allan leikinn.
Kristian Nökkvi Hlynsson var í byrjunarliði Jong Ajax sem vann 2-1 sigur á Den Bosch. Ajax var marki yfir í hálfleik en Den Bosch jafnaði metin.
Sigurmarkið kom þegar örfáar mínútur voru eftir af leiknum. Kristian lék rúmlega klukkutíma.
Þetta var fjórði sigurleikur Dortmund 2 í röð en Jong Ajax hefur ekki tapað í síðustu 13 leikjum.