Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 17. janúar 2023 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hafa áhuga á því að fá Gallagher til sín á nýjan leik
Conor Gallagher.
Conor Gallagher.
Mynd: EPA
Crystal Palace er á meðal félaga í ensku úrvalsdeildinni sem hafa áhuga á miðjumanninum Conor Gallagher.

Þetta kemur fram á Sky Sports.

Það er möguleiki á því að Gallagher muni yfirgefa Chelsea í þessum mánuði en hann hefur ekki verið í mjög svo stóru hlutverki hjá liðinu á tímabilinu.

Samkvæmt Sky Sports þá er Chelsea ekki búið að taka endanlega ákvörðun um það hvort Gallagher megi yfirgefa félagið.

Gallagher, sem er 22 ára, var á láni hjá Palace á síðustu leiktíð og átti stórfínt tímabil þar sem hann skoraði átta mörk í 39 leikjum. Það myndi styrkja lið Palace mikið að fá Gallagher aftur.

Crystal Palace er sem stendur í tólfta sæti ensku úrvalsdeildarinnar en Newcastle er meðal annarra félaga sem Gallagher hefur verið orðaður við.
Athugasemdir
banner
banner
banner