Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   lau 17. janúar 2026 18:05
Brynjar Ingi Erluson
Gerrard: Þetta er ekki ásættanlegt
Mynd: EPA
Steven Gerrard, fyrrum fyrirliði Liverpool, segir stigastöfnun liðsins ekki vera ásættanlega í síðustu leikjum og að Arne Slot verði gagnrýndur fyrir frammistöðu liðsins.

Liverpool tókst ekki að vinna nýliða Burnley. Dominik Szoboszlai klikkaði á punktinum en Florian Wirtz skoraði glæsilegt mark sem kom Liverpool í forystu.

Marcus Edwards jafnaði fyrir Burnley í síðari hálfleiknum og náði að halda út.

Liverpool er í 4. sætinu með 36 stig, en Gerrard segir úrslit síðustu leikja ekki ásættanleg fyrir liðið.

„Með fullri virðingu er það ekki ásættanlegt að gera jafntefli við Burnley á heimavelli. Ég er mjög gagnrýninn á Liverpool þó svo þeir séu á aðeins betra skriði þá er jafntefli gegn Burnley og Leeds ekki ásættanlegt. Það mun koma mikil gagnrýni í átt að stjóranum, en við verðum að gefa stjóranum það að síðast þegar við ræddum þetta og ég var spurður hvort það væri krísa hjá liðinu þá sagði ég að það væri ekki staðan því mér leið að stjórinn væri fær um að rétta úr kútnum og gera liðið stöðugt.“

„Hann hefur fært liðið upp úr miðju deildarinnar og upp í baráttu um Meistaradeildarsæti. Það verður í algerum forgangi hjá honum og liðinu að vera meðal fjögurra efstu en það mun ekki breyta neinu varðandi þá gagnrýni sem mun koma á næstunni,“
sagði Gerrard á TNT:
Athugasemdir
banner
banner
banner