Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. febrúar 2021 23:10
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir kvöldsins: Gylfi og Jói Berg sexaðir
Bernardo, Mahrez og Westwood bestir
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson fá 6 í einkunn frá Sky Sports fyrir sínar frammistöður í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Gylfi Þór bar fyrirliðabandið er Everton tapaði 1-3 gegn Manchester City. Allir leikmenn liðsins fá 6 í einkunn að undanskildum Jordan Pickford, Abdoulaye Doucoure og Richarlison sem fá 7.

Leikmenn Man City fá hærri einkunnir og var Riyad Mahrez maður leiksins með 8. Bernardo Silva er eini leikmaður vallarins sem fékk jafnháa einkunn, en þeir lögðu tvö seinni mörk leiksins upp fyrir hvorn annan.

Everton: Pickford (7), Godfrey (6), Holgate (6), Mina (6), Keane (6), Digne (6), Davies (6), Doucoure (7), Sigurdsson (6), Iwobi (6), Richarlison (7).
Varamenn: King (6), Rodriguez (6), Coleman (6).

Man City: Ederson (6), Walker (7), Dias (7), Laporte (6), Cancelo (7), Rodri (7), Bernardo (8), Foden (7), Mahrez (8), Sterling (6), Jesus (7).
Varamaður: De Bruyne (6)



Jóhann Berg spilaði aðeins 40 mínútur í jafntefli Burnley gegn nýliðum Fulham áður en hann þurfti að fara af velli vegna meiðsla.

Ashley Westwood, liðsfélagi Jóhanns á miðjunni hjá Burnley, var valinn besti maður vallarins með 8 í einkunn en flestir aðrir leikmenn Burnley fengu 7.

Robbie Brady, sem kom inn af bekknum fyrir Jóa Berg, var versti maður vallarins og fær fjarka að launum frá Sky. Varnarmistök hans orsökuðu opnunarmark leiksins sem Ola Aina skoraði eftir hornspyrnu.

Burnley: Pope (6), Lowton (7), Tarkowski (7), Long (7), Taylor (7), Gudmundsson (6), Westwood (8), Cork (7), McNeil (7), Barnes (7), Rodriguez (7).
Varamenn: Brady (4), Brownhill (6).

Fulham: Areola (7), Tete (6), Andersen (7), Adarabioyo (6), Aina (6), Loftus-Cheek (7), Reed (7), Lemina (6), Lookman (7), Maja (7), Reid (7).
Varamenn: Anguissa (6), Cavaleiro (7), Robinson (6).
Athugasemdir
banner
banner
banner