Fotbolti.net
17.02.26 - 12:30
Kári Snorrason
Í samstarfi við styrktaraðila

Furðuleg atburðarás í Frakklandi - Snýr aftur tveimur dögum eftir uppsögn

Benatia spilaði m.a. með Juventus og Bayern sem leikmaður.

Benatia spilaði m.a. með Juventus og Bayern sem leikmaður.

Canon

Mynd: EPA

Medhi Benatia verður áfram yfirmaður fótboltamála hjá Marseille þrátt fyrir að hafa tilkynnt opinberlega um uppsögn sína á sunnudaginn.

Benatia sagði upp störfum eftir að ítalski stjórinn Roberto De Zerbi var látinn taka poka sinn. Félagið hafði gefið út að það ætlaði að byggja til framtíðar með samstarfi Benatia og De Zerbi.

Benatia tók hinsvegar fund með eiganda félagsins í gær og snerist hugur. Samkvæmt tilkynningu frá eigandanum mun Benatia fá aukin völd og stýra öllum ákvörðunum sem viðkemur fótbolta og leiða leitina að nýjum stjóra.
Í tilkynningu Benatia á sunnudaginn þar sem hann greindi frá uppsögn sinni sagði að hann ætlaði stíga til hliðar með hagsmuni félagsins að sjónarmiði.

Gengi liðsins hefur verið slakt undanfarinn mánuð en liðið situr í fjórða sæti frönsku deildarinnar, fimm stigum frá því þriðja sem gefur Meistaradeildasæti.

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.