Liverpool skoðar Davies - City fer á markaðinn - Man Utd vill Gutierrez - Bruno og Garnacho ekki öruggir - Fleiri orðaðir frá United
   fös 17. mars 2023 14:34
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Vísir 
Gummi Ben: Endalausar árásir að heiðri og persónu Alberts mun ég ekki líða lengur
Icelandair
Guðmundur Benediktsson og Albert Guðmundsson.
Guðmundur Benediktsson og Albert Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gummi Ben að störfum á landsliðsæfingu.
Gummi Ben að störfum á landsliðsæfingu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albert Guðmundsson.
Albert Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Benediktsson, fjölmiðlamaður og faðir Alberts Guðmundssonar, hefur sent frá sér yfirlýsingu sem birtist á Vísi og sjá má hér að neðan.

Albert er ekki í landsliðshópnum fyrir fyrstu leikina í undankeppni EM. Hann hefur ekkert viljað tjá sig við fjölmiðla um málið en nú hefur faðir hans sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann gagnrýnir Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfara harðlega.

Eins og mikið hefur verið fjallað um þá andar köldu milli Arnars og Alberts en í viðtölum í gær sagði Arnar að Albert hefði gert kröfu á byrjunarliðssæti ef hann ætti að spila fyrir landsliðið.



Yfirlýsing frá Guðmundi Benediktssyni:

Ég hef nánast setið á strák mínum allt frá ráðningu Arnars Þór Viðarssonar þrátt fyrir að hafa ýmislegt við framkomu hans á fjölmiðlafundum að athuga eftir að hann tók til starfa.

Ég viðurkenni þó að ég hafði samband við Guðna Bergsson, þáverandi formann á sínum tíma, og bað hann að finna hjálp fyrir AÞV (Arnar Þór Viðarsson) til að undirbúa hann betur undir blaðamannafundi.

Meginástæðan fyrir því að ég hef ekki tjáð mig opinberlega fyrr er að ég er íþróttafréttamaður. En ég er fyrst og fremst faðir Alberts Guðmundssonar sem hefur verið viðriðinn landsliðið undanfarin ár.

Mér var hins vegar nóg boðið í gær eftir síðustu ummæli AÞV.

Rétt er að taka fram að ég geri enga kröfu á að Albert eigi að vera í landsliðshópi. AÞV var ráðinn til að stjórna því og getur gert hvað sem honum sýnist í þeim efnum.

En endalausar árásir að heiðri og persónu Alberts þegar hann er ekki í hópnum mun ég ekki líða lengur og þykir mér með ólíkindum að Knattspyrnusambandið láti þetta viðgangast.

Í síðustu viku bjallaði AÞV í Albert og ræddi mögulega endurkomu Alberts í landsliðið. Þeir áttu fínt samtal, samkvæmt Alberti, en niðurstaðan var að Albert taldi best að hann gæfi ekki kost á sér í þetta verkefni af ýmsum ástæðum.

AÞV heldur því fram að eina ástæðan sé að Albert neiti að vera varamaður sem er ekki rétt.

„Ég vel ekki leikmenn sem vilja ekki vera á bekknum,“ sagði Arnar við fjölmiðla.

Fjölskylduástæður spiluðu stóra rullu í ákvörðun Alberts ásamt stöðu Genoa í ítölsku deildinni og það veit AÞV mæta vel en ákveður að láta leikmanninn líta illa út enn og aftur.

Þess má líka geta að Albert hefur aldrei tjáð sig um þjálfarann og persónuna AÞV þrátt fyrir ótal tækifæri til að fara í leðjuslaginn sem AÞV virðist elska og fjölmiðlar apa upp eftir honum.

Ég kalla þetta leikþátt og ég stend við það þar sem ég er þess fullviss að AÞV hafði engan áhuga á að velja Albert en taldi sig nauðbeygðan þar sem Alberti hefur gengið vel á Ítalíu að undanförnu.

Eftir símtal þeirra á milli ákveður hann að ráðast á Albert og ekki í fyrsta sinn sem þjálfarinn reynir að gera lítið úr honum eftir að hafa tilkynnt hóp sinn. Ég veit ekki hvaða belgísku þjálfaranámskeið AÞV hefur setið en ég vona að þessi nálgun sé ekki kennd þar né á öðrum námskeiðum.

Persónulega hefði ég tilkynnt í september 2022 að ég myndi aldrei spila fyrir Ísland aftur undir stjórn AÞV eftir árásirnar frá þjálfaranum en sem betur fer er ég ekki Albert og hann er alltaf stoltur að fá að spila fyrir Ísland.

Ég óska íslenska liðinu velgengni í verkefninu sem framundan er og þar af leiðandi þjálfaranum en vona líka innilega að hann læri að umgangast fólk sem er mikilvægast í þjálfun.

Gummi Ben

Arnar segir Albert ekki hafa viljað vera á bekknum
Athugasemdir
banner
banner
banner