Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
Davíð Smári: Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn
Birnir Snær: Reynir mest á hausinn
   fös 17. apríl 2026 21:13
Kári Snorrason
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Ólafur Ingi Skúlason.
Ólafur Ingi Skúlason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frá látunum.
Frá látunum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik vann 1-0 sigur á ÍA í 2. umferð Bestu deildarinnar fyrr í kvöld. Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði liðsins, skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu.

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, ræddi við Fótbolta.net eftir leik.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  0 ÍA

„Ánægður með að hafa unnið. Þetta var mjög erfiður leikur. Mér fannst við vera stýra leiknum ágætlega í fyrri hálfleik þó að við sköpuðum kannski ekki margar stöður sem við búum til færi úr. Í seinni hálfleik fannst mér við passívir og skrefinu á eftir. Kannski pínu heppnir að hafa náð að hanga á þessu. Það er jákvætt að taka þrjú stig og spila ekki eins vel og við getum.“

Það ætlaði allt um koll að keyra undir lok fyrri hálfleiks. Valgeir Valgeirsson, leikmaður Breiðabliks, og Lárus Orri, þjálfari ÍA, létu einhver orð falla við hvorn annan og Valgeir sakaði Lárus um að kalla sig tussu. Við það skarst Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Blika, inn í leikinn og lét Lárus heyra það.

Undir lok leiks voru svo aftur læti en þá voru aðstoðarþjálfarar beggja liða reknir af velli. Ólafur Ingi gerði þó lítið úr málunum;„Þetta voru einhver smá læti. Menn ósammála einhverju. Bara eitthvað.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner