17.05.17 - 21:29
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Willum: Við þurftum að hafa fyrir þessu
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við þurftum að hafa fyrir þessu allan tímann. Leiknisliðið gafst aldrei upp og þetta var hörkuleikur,\" sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, eftir 4-1 sigur á Leikni F. í Borgunarbikarnum í dag.
„Við gerðum þetta nokkuð vel, við héldum boltanum vel og sköpuðum fín færi,\" sagði Willum.

Hinn danski Michael Præst var mættur í leikmannhóp KR í dag eftir löng meiðsli og hann kom inn á sem varamaður í seinni hálfleiknum. Willum var sáttur með hans frammistöðu.
„Mér fannst hún mjög góð,\" sagði Willum aðspurður út í frammistöðu Præst. „Það var mikilvægt að koma leikmínútum á hann, en að sama skapi var þetta þannig leikur að við þurftum að fá leikmann eins og hann inn á miðjusvæðið.\"
Atli Sigurjónsson var fenginn til KR á dögunum og hann spilaði síðustu tíu mínúturnar í Fjarðabyggðarhöllinni.
„Atli er flinkur fótboltamaður og hann sýndi það þegar hann kom inn á. Þett var jákvæð frammistaða hjá öllum í dag.\"
Í spilaranum að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.