Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
   sun 17. maí 2026 21:19
Sölvi Haraldsson
Ólafur Ingi neitar að tjá sig um mögulegt víti Blika
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta svíður, það er klárt. Mjög sárt.“ sagði Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, eftir 3-2 tap á Hlíðarenda í kvöld gegn Valsmönnum. Sigurmark leiksins kom alveg í blálokin.

Lestu um leikinn: Valur 3 -  2 Breiðablik

„Mér fannst við heilt yfir betri í fyrri hálfleik en það vantaði aðeins upp á þetta síðasta til þess að skapa færi, annars fannst mér við vera með yfirhöndina í þessu. Seinni hálfleikinn eigum við algjörlega frá A til Ö og gerum vel að komast í 2-1 en því miður ná þeir að skora hérna tvö mörk á okkur.“

Hvað gerist undir restina sem veldur því að Blikar missa 2-1 forystu niður í 3-2 tap?

„Ég hef ekki alveg svörin við því akkúrat núna. Þetta 2-2 mark er eitthvað þverhlaup og langur bolti sem við þurfum að skoða aðeins betur. Þeir geta refsað okkur á transition og við töluðum um það fyrir leik sem mér fannst við loka vel á en sofnuðum á verðinum þarna einu sinni. Svo í lokin fáum við horn sem endar með að þeir fá horn og þar kom sigurmarkið, því miður.“

Blikar vildu fá víti í seinni hálfleiknum þegar Ágúst Orri var sparkaður niður í teignum, Ólafur vildi ekki tjá sig um þá ákvörðun Jóhanns dómara leiksins að ekki dæma víti.

„Ég ætla bara að segja no comment, ég held að það sé langbest bara,“ sagði Ólafur Ingi og brosti kaldhæðnislega.

Viðtalið við Ólaf má finna í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner