17.06.05 - 16:57
Arnar Geir Halldórsson
Benoit Pedretti til Lyon (Staðfest)

Lyon að styrkja sig

Lyon að styrkja sig

Franski miðjumaðurinn Benoit Pedretti er genginn til liðs við Frakklandsmeistarana í Lyon. Pedretti kemur frá Marseille fyrir 7 milljónir evra. Pedretti sem er 24 ára skrifaði undir fjögurra ára samning en þetta eru fyrstu kaup Lyon frá því að þeir urðu Frakklandsmeistarar.
Pedretti gekk til liðs Marseille frá Sochaux í júlí í fyrra en náði ekki að festa sig í sessi þar. Pedretti er góður miðjumaður og mun án efa koma til með að styrkja Lyon til muna.
Pedretti hefur leikið 22 landsleiki fyrir Frakklands hönd.
Talið er að Lyon snúi sér nú að því að fá Milan Baros framherja Liverpool til liðs við sig en líklegt er að það verði erfitt þar sem hann gaf það út að hann vilji vera áfram hjá liðinu.