Fotbolti.net
17.06.26 - 19:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Bellingham bætir met - Modric aðeins annar í sögunni

Bellingham bætir met - Modric aðeins annar í sögunni
Canon

Mynd: EPA

Jude Bellingham er í byrjunarliði Englands sem mætir Króatíu í fyrsta leik liðanna á hM í kvöld.

Bellingham er 22 ára og 353 daga gamall en hann verður yngsti evrópski leikmaðurinn til að spila á fjórum mismunandi stórmótum (EM og HM).
Leikurinn í kvöld verður hans sextándi á stórmóti en enginn evrópskur leikmaður hefur spilað jafn marga leiki fyrir 23 ára aldur.

Hinn fertugi Luka Modric er í byrjunarliði Króatíu en hann er aðeins annar Evrópubúinn til að spila á tíu stórmótum. Aðeins Cristiano Ronaldo hefur spilað á fleiri stórmótum eða ellefu talsins.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.