Mjólkurbikar kvenna: Fyrirliðinn skaut Eyjakonum í undanúrslit

Avery Mae Vanderven

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Allison Grace Lowrey

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Avery Mae Vanderven

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV 3 - 2 FH
1-0 Allison Grace Lowrey ('4 )
1-1 Ída Marín Hermannsdóttir ('42 )
2-1 Allison Patricia Clark ('49 )
2-2 Berglind Freyja Hlynsdóttir ('80 )
2-2 Avery Mae Vanderven ('94 , misnotað víti)
3-2 Avery Mae Vanderven ('104 )
Lestu um leikinn

ÍBV er komið í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna eftir sigur á FH í Eyjum í kvöld.
Eyjakonur náðu forystunni snemma leiks. Allison Grace Lowrey var á undan tveimur varnarmönnum FH í boltann og tók skotið við vítateiginn. Boltinn fór af varnarmanni og í netið.
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir var nálægt því að jafna metin stuttu síðar en Guðný Geirsdóttir varði frábærlega frá henni.
FH sótti hart að marki ÍBV og náði að jafna metin undir lok fyrri hálfleiks þegar Ída Marín Hermannsdóttir skoraði eftir hornspyrnu.
ÍBV náði forystunni aftur snemma í seinni hálfleik. Allison Patricia Clark fékk boltann alein inn á teignum og skoraði af öryggi.
Þegar tíu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma jafnaði Berglind Freyja Hlynsdóttir metin fyrir FH og það þurfti því að framlengja leikinn.
ÍBV fékk vítaspyrnu snemma í framlengingunni en Aldís Guðlaugsdóttir varði frá Avery Mae Vanderven. Avery kvittaði fyrir klúðrið þegar hún var alein á fjær eftir fyrirgjöf úr aukaspyrnu. Hún skoraði og tryggði ÍBV áfram í undanúrslitin.