Fotbolti.net
17.06.26 - 19:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Segir að Martínez hafi verið hræddur við að taka Ronaldo af velli

Segir að Martínez hafi verið hræddur við að taka Ronaldo af velli
Canon

Mynd: EPA

Chris Sutton, sérfræðingur hjá BBC, gagnrýndi Roberto Martínez, landsliðsþjálfara Portúgal, harkalega eftir óvænt jafntefli liðsins gegn Kongó á HM í kvöld.

Cristiano Ronaldo var í byrjunarliði Portúgals en komst alls ekki í takt við leikinn.
„Ég skil ekki hvernig Roberto Martínez stjórnar leiknum stundum. Ronaldo var ekki með, Martinez þarf að vera nógu hugrakkur til að vera þjálfarinn. Hann er ekki þjálfari portúgalska liðsins og það er þeirra vandamál," sagði Sutton.

„Þetta er vandræðalegt fyrir Roberto Martínez. Erum við að horfa á sama leikinn? Hann er hræddur við að taka hann af velli. Hann gæti skorað sigurmarkið en leikurinn hefur farið frá honum. Hann er frábær leikmaður. Hann var einu sinni leikstjórnandi en nú er hann markaskorari inn í teig."

Ronaldo snerti boltann aðeins 25 sinnum en hann hefur aldrei snert boltann sjaldnar í leik á stórmóti. Þá hefur hann ekki skorað í tíu leikjum í röð á stórmóti.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.