Fotbolti.net
17.06.26 - 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sjáðu markið: Bellingham kom Englandi yfir í þriðja sinn

Sjáðu markið: Bellingham kom Englandi yfir í þriðja sinn
Canon

Mynd: EPA

England hefur náð forystunni í þriðja sinn gegn Króatíu í mögnuðum leik á HM.

Staðan var 2-2 í hálfleik þar sem Harry Kane kom Englendingum yfir í tvígang.
England komst yfir í þriðja sinn strax í upphafi seinni hálfleiks. Elliot Anderson sendi á Jude Bellingham sem tók á sprettinn inn á teiginn og skoraði framhjá Dominik Livakovic.

Livakovic hefur komið í veg fyrir að England sé með meiri forystu en hann hefur nokkrum sinnum varið mjög vel, meðal annars einu sinni í þrígang. Staðan er enn 3-2 þegar um 25 mínútur eru til loka venjulegs leiktíma.

Sjáðu markið hér
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.