Fotbolti.net
17.06.26 - 20:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sjáðu mörkin: Króatía kom tvisvar til baka

Sjáðu mörkin: Króatía kom tvisvar til baka
Canon

Mynd: EPA

Það er fjörugur leikur í gangi milli Englands og Króatíu. Staðan er jöfn í hálfleik í fyrsta leik liðanna í L-riðli á HM. Harry Kane kom Englandi yfir með marki úr vítaspyrnu.
Króatía náði hins vegar að jafna metin eftir rúmlega hálftíma leik. Króatar unnu boltann á miðjunni. Petar Sucic fékk boltann og sendi út á Martin Baturina sem skoraði með glæsilegu skoti.

Kane náði hins vegar að endurheimta forystuna fyrir Englendinga undir lok fyrri hálfleiks. Hann skoraði með skalla eftir hornspyrnu frá Declan Rice.

Króatía gafst hins vegar ekki upp og jafnaði metin í blálokin. Mario Pasalic átti frábæra sendingu inn fyrir vörn Englands og Ivan Perisic skallaði boltann á Petar Musa sem skoraði.

Sjáðu mark Baturina hér
Sjáðu mark Kane hér
Sjáðu markið hjá Musa hér
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.