17.07.05 - 07:52
Magnús Már Einarsson
Aloisi til Alaves (Staðfest)

Ástralski framherjinn John Aloisi hefur gengið til liðs við nýliða Alaves í La Liga. Aloisi hefur gert tveggja ára samning við Alavés en bæði Portsmouth og Sunderland úr ensku úrvalsdeildinni höfðu verið á eftir kappanum.
Samningur Aloisi við Osasuna var runninn út og allt stefndi í að hann væri til Panathinaikos í sumar en gríska liðið hætti við að fá hann þar sem hann hefur átt við hnémeiðsli að stríða.
Aloisi íhugaði að vera áfram hjá Osasuna en hann hefur nú skrifað undir samning við Alaves. Hann sagði: ,,Alaves er nýtt félag í La Liga með stóra sögu á Spáni. Fyrir mér er þetta frábær staður í leit að mörkum."