17.07.05 - 16:55
Magnús Már Einarsson
Niclas Jensen til Fulham (Staðfest)




Fulham hefur keypt danska vinstri bakvörðinn Niclas Jensen frá Borussia Dortmund fyrir óuppgefna upphæð. Þessi 31 árs leikmaður hefur gert tveggja ára samning við Fulham en hann er ekki óvanur enska boltanum því hann spilaði með Manchester City tímabilið 2002/2003.
Jensen byrjaði feril sinn í Danmörku áður en hann fór til PSV. Hann fór aftur til Danmörku en í janúar 2002 fór hann til Manchester City og hjálpaði liðinu að komast upp í ensku úrvalsdeildinni. Hann lék svo 32 leiki í úrvalsdeildinni tímabilið 2002/2003.
Jensen er fjórði leikmaðurinn sem Fulham fær í sumar en hinir eru Heiðar Helguson, Jaroslav Drobny og Ahmad Elrich.
Jensen er fjórði leikmaðurinn sem Fulham fær í sumar en hinir eru Heiðar Helguson, Jaroslav Drobny og Ahmad Elrich.
