Fotbolti.net
17.07.18 - 21:58
Ester Ósk Árnadóttir

Ray Anthony: Þurfum að vinna úr þessu á æfingasvæðinu

Auglýsing
Ray Anthony: Þurfum að vinna úr þessu á æfingasvæðinu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Það fór svolítið margt úrskeiðis, 4 mörk úr föstum leikatriðum og fimmta markið var svona uppgjöf, sagði Ray Anthony Jónsson þjálfari Grindavíkur eftir 5-0 tap gegn Þór/KA í dag á Þórsvellinum. 
Grindavík fékk mark á sig í lok fyrri hálfleik eftir að hafa varist allan hálfleikinn.



„Markmiðið er að fá ekki mark á okkur og reyna að þrauka út leikinn en við höfum átt í svolitlum erfiðleikum með það. Við þurfum bara að vinnu úr þessu á æfingasvæðinu.“



Grindavík átti í miklu basli með Þór/KA.



„Það vantaði grimmdina í seinni boltann, það var alltaf eins og boltinn væri að detta fyrir Þór/KA. Þór/KA er náttúrulega með hörkulið og eru mjög grimmar í návígi og við vorum aðeins undir þar í dag.“



Það eru erfiðir leikir framundan hjá Grindavík en þær mæta Breiðblik, Val og Stjörnunni í næstu leikjum.



„Það er alltaf gaman að spila við sterkustu liðin og manni langar það alltaf þannig það verður bara gaman að takast á við það.“



Grindavík er í sjöunda sæti með 9 stig eftir 10 umferðir.



„Maður er alltaf jafn gráðugur, ég væri alveg til í fleiri stig en við erum ennþá á réttri braut. Við ætlum að halda okkur uppi það er markmiðið.“



Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan. 
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.