Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 17. júlí 2021 20:14
Victor Pálsson
Brynjar Ingi með tvö í stórsigri Lecce
Mynd: Getty Images
Brynjar Ingi Bjarnason var í byrjunarliði Lecce í dag sem spilaði æfingaleik við lið USD Sinigo.

Brynjar er nýgenginn í raðir Lecce sem spilar á Ítalíu en hann var seldur þangað frá KA í lok síðasta mánaðar.

Miðvörðurinn stimplaði sig inn í leiknum í dag en hann skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik.

Lecce var með 5-0 forystu eftir fyrri hálfleikinn en Brynjar skoraði mörkin á 17. og 25. mínútu.

Lecce var mun sterkari aðilinn allan leikinn og vann að lokum 13-0 sigur.

Brynjar fór af velli í hálfleik en Lecce breytti algjörlega um lið í síðari hálfleiknum.
Athugasemdir
banner
banner