Fotbolti.net
17.07.21 - 16:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Jimenez lék sinn fyrsta leik í 8 mánuði

Jimenez lék sinn fyrsta leik í 8 mánuði
Canon

Mynd: Getty Images

Wolves heimsótti Crewe í æfingarleik á Englandi í dag.
Leiknum lauk með 1-0 sigri heimamanna en eina mark leiksins skoraði Christopher Long á 53. mínútu.

Mexíkóski framherjinn Raul Jimenez var í byrjunarliði Wolves en þetta var hans fyrsti leikur í 8 mánuði eða frá því hann höfuðkúpubrotnaði í leik gegn Arsenal.

Hann lék rúman hálftíma en Patrick Coutrone leysti hann af. Jimenez var nálægt því að skora rétt áður en hann var tekinn af velli en skot hans beint úr aukaspyrnu endaði í slánni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.