Manchester United er á fullu að undirbúa sig fyrir næsta tímabil í ensku úrvalsdeildinni.
Liðið hóf undirbúningstímabilið með því að sigra erkifjendur sína í Liverpool en leikurinn fór fram á Tælandi.
Liðið hélt svo til Ástralíu, í gær spilaði United gegn Melbourne Victory og sigraði 4-1.
Anthony Elanga sagði í viðtali að liðið sé í mun betra formi heldur en á síðustu leiktíð.
„Við vitum að við vorum ekki í eins góðu formi á síðustu leiktíð. Ég held að við séum í enn betra formi núna, erum að hlaupa fyrir liðið, með og án bolta. Það er mjög mikilvægt," sagði Elanga.
„Það er eitt sem stjórinn hefur komið með í liðið og við reynum að komast inn í það."
Athugasemdir