Fotbolti.net
11.09.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

5. deild: Smári tók þriðja sætið

5. deild: Smári tók þriðja sætið
Canon

Mynd: Smári/Instagram

Smári 2 - 1 Stokkseyri
0-1 Jón Jökull Þráinsson ('19 )
1-1 Sigurður Tómas Jónsson ('30 )
2-1 Elfar Ísak Halldórsson ('61 , sjálfsmark)
Rautt spjald:Arilíus Marteinsson , Stokkseyri ('77)
Smári tryggði sér þriðja sætið í 5. deild karla með 2-1 sigri á Stokkseyri í leiknum um bronsið í gær.

Jón Jökull Þráinsson kom Stokkseyri yfir á 19. mínútu en Sigurður Tómas Jónsson jafnaði ellefu mínútum síðar. Sigurmark Smára kom svo á 61. mínútu þegar Elfar Ísak Halldórsson varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net.

Arilíus Marteinsson, þjálfari Stokkseyris, fékk rauða spjaldið tæpum stundarfjórðungi fyrir leikslok en Smáramenn héldu út og fögnuðu bronsinu.

Leikurinn gæti haft meira að segja en lokasætið því Smári stendur nú fyrst í röðinni ef sæti losnar í 4. deild. Það gæti til dæmis gerst ef lið sameinast, fær ekki þátttökuleyfi eða er vísað úr keppni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.