Fotbolti.net
11.09.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

2. deild kvenna: Luku tímabilinu með góðum sigrum

Álftanes vann síðustu þrjá leiki sína

Álftanes vann síðustu þrjá leiki sína

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Kvennaboltinn
KÞ og Álftanes unnu góða sigra í 2. deild kvenna og kláruðu tímabilið á góðum nótum og lögðu um leið grunninn að næstu leiktíð.
KÞ hafði sigur gegn Augnabliki, 5-0, í B-riðlinum. Steinunn Lára Ingvarsdóttir skoraði þrennu og Emma Sóley Arnarsdóttir tvö í sigrinum.

Liðið hafnaði í 7. sæti deildarinnar með 21 stig, jafnmörg og Dalvík/Reynir sem endaði ofar á markatölu.

Augnablik lenti í 8. sæti með 19 stig.

Álftanes kláraði tímabilið frábærlega og vann síðustu þrjá leiki sína í C-riðlinum. Það vann 3-0 sigur á KFR í gær þar sem Helga Kristinsdóttir gerði tvö og Birta Rún Össurardóttir eitt.

Álftnesingar höfnuðu í næstneðsta sæti með 14 stig, einu frá KFR sem lenti í 10. sæti.

B-riðill:

KÞ 5 - 0 Augnablik
1-0 Emma Sóley Arnarsdóttir ('15 )
2-0 Steinunn Lára Ingvarsdóttir ('33 )
3-0 Emma Sóley Arnarsdóttir ('43 )
4-0 Steinunn Lára Ingvarsdóttir ('76 )
5-0 Steinunn Lára Ingvarsdóttir ('79 )

C-riðill:

KFR 0 - 3 Álftanes
0-1 Helga Kristinsdóttir ('45 )
0-2 Birta Rún Össurardóttir ('55 )
0-3 Helga Kristinsdóttir ('90 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding17+3538
2Dalvík/Reynir17-1321
317-1821
4Augnablik17-2719
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.