Fotbolti.net
17.09.22 - 10:37
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Byrjunarlið Wolves og Man City: Grealish byrjar - Enginn Diego Costa

Byrjunarlið Wolves og Man City: Grealish byrjar - Enginn Diego Costa
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur tækifæri á því að fara á toppinn í ensku úrvalsdeildinni í dag en liðið mætir Wolves á útivelli kl 11:30. Byrjunarlið liðana voru að detta í hús.

Hvorki Diego Costa né Adama Traore eru í leikmannahópi Wolves í dag. Það er mikið um meiðsli fram á við en Neto, Goncalo Guedes og Daniel Podence eru í fremstu víglínu í dag.

Manuel Akanji er við hlið Ruben Dias í vörninni hjá City en það lítur út fyrir að John Stones sé í hægri bakverði.

Þá er Jack Grealish ásamt Phil Foden og Erling Haaland í fremstu víglínu.

Wolves: Sa; Jonny, Collins, Kilman, Ait-Nouri; Moutinho, Nunes, Neves; Neto, Guedes, Podence

Man City: Ederson; Stones, Dias, Akanji, Cancelo; Rodri, De Bruyne, Bernardo; Foden, Haaland, Grealish

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City9+1021
2Arsenal8+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool8+315
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Leeds9+111
11Hull City9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.