Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 17. september 2022 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Newcastle í viðræðum um kaup á næsta Sadio Mane
Mynd: EPA

Newcastle er í viðræðum við Central Coast Mariners um kaup á Garang Kuol en Central Coast Mariners leikur í áströlsku deildinni. 


Kuol hefur verið líkt við Sadio Mane leikmann Bayern Munchen og senegalska landsliðsins en þessi 18 ára gamli framherji er fæddur í Egyptalandi en er af súdönskum ættum.

Hann er þó alinn upp í Ástralíu og hefur verið kallaður í A-landslið Ástralíu fyrir leik gegn Nýja Sjálandi.

Dortmund, AJax og Ajax hafa einnig fylgst vel með honum en bróðir hans, Alou Koul spilar með Stuttgart.

Hann lék með CC Mariners í æfingaleik gegn Barcelona á undirbúningstímabilinu og Xavi var mjög hrifinn af honum.

„Hann var mjög góður, bjó til mörg færi og skoraði næstum því. 17 ára? Kannski er hann ótrúlegur lygari, þetta er ótrúlegt fyrir 17 ára dreng. Óska honum alls hins besta,"  sagði Xavi.


Athugasemdir
banner
banner
banner