Fotbolti.net
17.10.20 - 22:05
Victor Pálsson

Frakkland: Marseille með heimasigur

Frakkland: Marseille með heimasigur
Canon

Mynd: Getty Images

<b>Marseille 3 - 1 Bordeaux</b>
1-0 Florian Thauvin('5)
2-0 Jordan Amavi('54)
3-0 Pablo('64, sjálfsmark)
3-1 Josh Maja('84)
Marseille lyfti sér upp í fimmta sæti frönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld er liðið mætti Bordeaux í sjöundu umferð deildarinnar.

Marseille hafði gert heil þrjú jafntefli í síðustu leikjum sínum en komst aftur á sigurbraut með heimasigri í dag.

Heimamenn höfðu betur með þremur mörkum gegn einu þar sem Florian Thauvin, fyrrum leikmaður Newcastle, komst á blað.

Bordeaux hefur verið í smá basli og er með níu stig í tíunda sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir Marseille.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.