17.10.21 - 20:40
Victor Pálsson
Ítalía: Napoli á toppinn - Juventus lagði Roma

Komnir á toppinn.

Mynd: EPA

Komnir á toppinn.

Mynd: EPA
Tveimur síðustu leikjum dagsins í Serie A er nú lokið en stórlið Napoli og Juventus tókst þar að næla í þrjú stig í töflunni.
Klukkan 16:00 hófst leikur Napoli og Torino þar sem eitt mark var skorað og voru það heimamenn í bláklæddu sem gerðu það.
Victor Osimhen skoraði eina markið þegar níu mínútur voru eftir en fyrir það hafði Lorenzo Insigne klikkað á vítaspyrnu í fyrri hálfleik.
Napoli er nú á toppi deildarinnar með 24 stig, tveimur stigum á undan AC Milan sem er í því öðru.
Juventus lyfti sér síðar í kvöld upp í sjöunda sætið með einnig 1-0 heimasigri en andstæðingurinn var Roma.
Það var Moise Kean sem gerði eina markið í leik leik en hann kom boltanum í netið eftir 16 mínútur og þar við sat.
Roma gat jafnað metin á 44. Mínútu en Jordan Veretout missteig sig þá á vítapunktinum og lokastaðan 1-0.
Roma var að tapa sínum þriðja leik undir stjórn Jose Mourinho og er í fjórða sætinu með 15 stig eftir átta leiki.
Napoli 1 - 0 Atalanta
1-0 Victor Osimhen('81)
Juventus 1 - 0 Roma
1-0 Moise Kean('19)