17.10.26 - 20:16
Ívan Guðjón Baldursson
Darwin Núnez klúðraði víti - Lacazette tapaði

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það fóru tveir leikir fram í efstu deild í Sádi-Arabíu í dag þar sem úrúgvæski framherjinn Darwin Núnez klúðraði vítaspyrnu í jafntefli.
Núnez er á mála hjá Al-Diriyah sem gerði jafntefli við Al-Taawon í dag, en Núnez hefur skorað 3 mörk í 7 deildarleikjum fyrir liðið.
Chancel Mbemba, Enzo Millot, Berat Djimsiti, Idrissa Gana Gueye og Óscar Rodríguez voru einnig meðal byrjunarliðsmanna Al-Diriyah, sem er komið með 12 stig eftir 9 umferðir.
Andstæðingar þeirra í liði Al-Taawon eru enn án sigurs og aðeins komnir með fjögur stig, en marokkóska markavélin Abderrazak Hamdallah var í byrjunarliðinu og skoraði eina mark liðsins til að bjarga stigi.
Alexandre Lacazette var þá á sínum stað í byrjunarliði Neom SC sem tapaði óvænt á heimavelli. Lacazette er fyrirliði félagsins og voru fyrrum úrvalsdeildarleikmennirnir Saïd Benrahma og Malang Sarr einnig meðal byrjunarliðsmanna.
Neom tapaði gegn Al-Ettifaq sem er með Jack Hendry og Jordan Larsson innanborðs.
Neom er í fimmta sæti deildarinnar eftir þetta tap, með 16 stig - sex stigum á eftir toppliði Al-Hilal. Al-Ettifaq er einu stigi á eftir Neom.
Til gamans má geta að Christophe Galtier, fyrrum stjóri Lille, Nice og PSG, er við stjórnvölinn hjá Neom. Þá er Bruno Lage, fyrrum þjálfari Wolves og Benfica, við stjórnvölinn hjá Al-Diriyah.
Al-Diriyah 1 - 1 Al-Taawon
1-0 Clayton Diandy ('20)
1-1 Abderrazak Hamdallah ('66)
1-1 Darwin Nunez, misnotað víti ('79)
Neom SC 0 - 1 Al-Ettifaq
0-1 Abdullah Ahmed Khateeb ('82)