Fotbolti.net
17.10.26 - 20:52
Ívan Guðjón Baldursson
Franski boltinn

Frakkland: PSG deilir toppsætinu með Hákoni

Frakkland: PSG deilir toppsætinu með Hákoni
Canon

Mynd: EPA

Það fóru þrír leikir fram í efstu deild franska boltans í dag og í kvöld þar sem Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain lentu undir á útivelli gegn Strasbourg, systurfélagi Chelsea.
Luis Enrique þjálfari PSG hvíldi marga lykilmenn eftir að stórstjörnur liðsins eyddu mikilli orku á útivelli gegn Manchester City í miðri viku. Strasbourg hélt því 1-0 forystu allt þar til í síðari hálfleik, þegar Enrique skipti stjörnunum inn af bekknum.

Ousmane Dembélé, besti leikmaður heims í fyrra, var meðal þeirra sem komu inn og gjörbreytti hann útkomu leiksins.

Dembélé kom inn á 63. mínútu og klúðraði vítaspyrnu níu mínútum síðar en lét svo fyrirgefa sér. Hann lagði upp jöfnunarmarkið fyrir Illia Zabarnyi á 77. mínútu og náði svo forystunni með því að skora sjálfur á 85. mínútu.

Staðan var þá orðin 1-2 og átti Désiré Doué, sem kom einnig inn af bekknum, eftir að innsigla sigur PSG í uppbótartíma eftir undirbúning frá Ferran Torres. Lokatölur 1-3.

Hinn óþreytandi Hákon Arnar Haraldsson lék þá allan leikinn í jafntefli hjá Lille gegn Brest.

Lille lenti undir á heimavelli en Olivier Giroud kom inn af bekknum og jafnaði úr vítaspyrnu. Lokatölur 1-1.

Lille fékk öll bestu færi leiksins en tókst ekki að fara með sigur af hólmi. Hákon og félagar deila toppsæti deildarinnar með PSG og AS Monaco, en Monaco á leik til góða. Liðin eiga öll 14 stig.

Að lokum hafði Lens betur á útivelli gegn Troyes og er Lens í sjöunda sæti, með 10 stig. Florian Thauvin átti tvær stoðsendingar í sigri Lens og komst Odsonne Édouard á blað.

Strasbourg 1 - 3 PSG
1-0 Giovanni Reyna ('17 )
1-0 Ousmane Dembele ('72 , Misnotað víti)
1-1 Ilya Zabarnyi ('77 )
1-2 Ousmane Dembele ('85 )
1-3 Desire Doue ('90 )

Lille 1 - 1 Brest
0-1 Mama Balde ('6 )
1-1 Olivier Giroud ('64 , víti)

Troyes 1 - 3 Lens
0-1 Adrien Monfray ('13 , sjálfsmark)
1-1 Timothe Nkada ('26 )
1-2 Odsonne Edouard ('45 )
1-3 Ruben Aguilar ('55 )
Frakkland: PSG deilir toppsætinu með Hákoni
Canon

Mynd: EPA

Frakkland: PSG deilir toppsætinu með Hákoni
Canon

Mynd: EPA

Frakkland: PSG deilir toppsætinu með Hákoni
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.