Fotbolti.net
17.10.26 - 17:52
Ívan Guðjón Baldursson

Olgeir sá mikla bætingu: Ekki til staðar í síðasta leik

Auglýsing
Olgeir sá mikla bætingu: Ekki til staðar í síðasta leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Olgeir Sigurgeirsson, annar þjálfara Stjörnunnar út tímabilið, svaraði spurningum eftir 3-1 tap á útivelli gegn Þór í næstsíðustu umferð Bestu deildar karla í dag.
Lestu um leikinn: Þór 3 - 1 Stjarnan
Olgeir tók við sem tímabundinn þjálfari Stjörnunnar í ágúst ásamt Brynjari Kristmundssyni, eftir að hafa verið aðstoðarþjálfarar Jóns Þórs Haukssonar sem var rekinn frá Stjörnunni og aðalþjálfarar venslaliðs KFG sem féll úr 2. deild í september.

Stjarnan heimsótti Þór í dag án þess að neitt væri undir fyrir Garðbæinga sem voru búnir að tryggja áframhaldandi þátttöku í Bestu deildinni fyrir upphafsflautið. En var erfitt að mótivera leikmenn Stjörnunnar fyrir þennan leik?

„Ég er það einfaldur að ég hef alltaf trúað því að keppnismenn mæti í fótboltaleiki til að keppa. Vissulega er aðeins öðruvísi að spila þegar maður er að berjast fyrir að halda sér í deildinni og þegar maður hefur ekkert stórt að keppa um, en það er ekkert gaman að fara í rútuferð heim eftir tapleik. Það eitt og sér á að vera næg mótivering til að koma hingað og keppa," sagði Olgeir, sem var svo spurður út í 3-0 tap liðsins á heimavelli gegn KA í síðustu umferð.

„Við vorum alveg að leggja okkur fram í dag, menn voru að hlaupa og reyna að berjast. Ég sá mikinn mun á liðinu á milli leikja, síðasti leikur var bara ekki boðlegur. Öll nálgun í varnarleik og ákefð, hvernig við vorum að pressa, hvernig við bárum okkur, líkamstjáning, hlaupa til baka. Það var bara ekki til staðar í síðasta leik, en það var alveg til staðar í dag."

Stjarnan er búin að ráða nýjan aðalþjálfara fyrir næstu leiktíð og vonast Olgeir til að starfa sem aðstoðarþjálfari hans. Rúnar Páll Sigmundsson er að taka við sem aðalþjálfari en hann og Olgeir eru góðir vinir.

„Ég og Rúnar erum mjög góðir vinir og spjöllum mjög reglulega saman. Rúnar er frábær þjálfari og frábær manneskja og ég vil alltaf vera umvafinn góðum manneskjum," svaraði Olgeir þegar hann var spurður hvort honum hygðist að starfa sem aðstoðarþjálfari Stjörnunnar á næstu leiktíð.

Olgeir og Rúnar Páll störfuðu saman hjá Fylki.
Olgeir sá mikla bætingu: Ekki til staðar í síðasta leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Olgeir sá mikla bætingu: Ekki til staðar í síðasta leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.