17.10.26 - 19:33
Elvar Geir Magnússon
Snjalltæki í staðinn fyrir spjöld

Framtíðin?

Mynd: X

Framtíðin?

Mynd: X
Í úrúgvæsku bikarkeppninni hafa verið gerð tilraunir á notkun á sérstökum snjalltækjum fyrir dómara sem þeir nota til að sýna áminningar, í staðinn fyrir gömlu og góðu gulu og rauðu spjöldin.
Dómararnir stilla þá inn hvort þeir séu að sýna gult eða rautt. Tækin eru einnig notuð til að skrá inn skiptingar og önnur atvik í leiknum.
Dómararnir stilla þá inn hvort þeir séu að sýna gult eða rautt. Tækin eru einnig notuð til að skrá inn skiptingar og önnur atvik í leiknum.
Það hafa þó komið upp vandamál og erfitt hefur verið fyrir vallargesti og sjónvaráhorfendur að sjá á skjáinn í vissum birtuskilyrðum. Þeir sem sjá um þróun tækisins íhuga að nota LED ljós til að auka sýnileikann.
Juan Pablo Plada, leikmaður Rentistas, varð fyrsti leikmaður sögunnar til að fá gult spjald á stafrænu formi en það fékk hann frá dómaranum Eduardo Varela.
Eins og áður segir er notkunin á tilraunastigi en spurning er hvort svona snjalltæki sé framtíðin fyrir dómara?

????JUST IN: Referees in Uruguay have started to use digital yellow and red cards
— Polymarket Sports (@PolymarketSport) October 16, 2026
The device tracks every booking, substitution, goal, and penalty https://t.co/W5ou76gAPd