Fotbolti.net
17.11.20 - 20:55
Ívan Guðjón Baldursson

England: Jökull hélt hreinu í stórsigri

England: Jökull hélt hreinu í stórsigri
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Exeter 4 - 0 West Brom U21</b>
1-0 H. Kite ('27)
2-0 B. Seymour ('48)
3-0 J. Sparkes ('60)
4-0 N. Law ('84)
Jökull Andrésson hefur farið vel af stað með Exeter og varði hann mark liðsins aftur í dag í leik gegn U21 liði West Bromwich Albion í EFL bikarnum.

Exeter, sem leikur í D-deild enska boltans, hefur ekki enn tapað leik með Jökul í markinu.

Í dag lentu Jökull og félagar ekki í vandræðum og skoruðu fjögur mörk gegn peyjunum í West Brom.

Exeter er með fullt hús stiga eftir riðlakeppni EFL bikarsins og fer áfram í næstu umferð ásamt Forest Green.

Senica 2 - 2 Sered
1-0 O. Fotr ('14)
1-1 S. Jarovic ('89)
2-1 T. Malec ('91)
2-2 M. Lacny ('94)
Rautt spjald: O. Fotr, Senica ('70)

Nói Snæhólm Ólafsson var þá ónotaður varamaður er tíu leikmenn Senica gerðu jafntefli við Sered í dramatískum leik.

Liðin eru bæði í neðri hluta deildarinnar, nokkrum stigum frá botnsætinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.